Alfreð Birgisson með þriðja Íslandsmeistaratitil utandyra í röð

Alfreð Birgisson úr Íþróttafélaginu Akri á Akureyri og Húsvíkingur að uppruna vann þriðja Íslandsmeistaratitil utandyra sinn í röð í trissuboga karla á

Alfreð Birgisson. Lj. archery.is
Alfreð Birgisson. Lj. archery.is

Alfreð Birgisson úr Íþróttafélaginu Akri á Akureyri og Húsvíkingur að uppruna vann þriðja Íslandsmeistaratitil utandyra sinn í röð í trissuboga karla á Íslandsmeistaramótinu utandyra í bogfimi (ÍM24) sem haldið var á Hamranesvelli í Hafnarfirði helgina 20-21 júlí.

Frá þessu segir á archery.is en Alfreð var hæstur í undankeppni með skorið 678, bæði í karla flokki og óháð kyni. Það var ekki langt frá Íslandsmetinu sem er 683 stig enda var óvenju gott veður á ÍM24 miðað við fyrri ár. Alfreð fékk tak í bakið fyrir skömmu og átti erfitt með að sitja og beygja sig, sem betur fer stöndum við í bogfimi.

Lesa meira á archery.is


  • Herna

640.is | Ábyrgðarmaður Hafþór Hreiðarsson | vefstjori@640.is | Sími: 895-6744