08. nóv
Áhugi á að tendra jólaljósin viku síðar en venja erAlmennt - - Lestrar 135
Á fundi Fjölskylduráðs Norðurþings í morgun var fjallað var um tillögu þess efnis að tendra ljósin á jólatrénu á Húsavík föstudaginn 2. desember í stað laugardagsins 26. nóvember, sem er fyrsta helgin í aðventu.
Fram kemur í fundargerð að jólahátíð Húsavíkurstofu, Jólabærinn minn, fari fram í miðbæ Húsavíkur helgina 2. til 4. desember.
Yrði tendrun jólatrésins þá opnunarviðburður helgarinnar.
Málið var lagt fram til kynningar.