10. jún
Afhenti Myndlistarsafni Þingeyinga tvö málverk eftir Jón EngilbertsAlmennt - - Lestrar 222
Formleg afhending tveggja málverka eftir Jón Engilberts, úr myndasafni Íslands-banka, fór fram í Safnahúsinu í gær og eru verkin nú í eigu Myndlistarsafns Þingeyinga.
Á myndinni má sjá Margréti Hólm Valsdóttur útibússtjóra Íslandsbanka á Húsavík og Sigríði Örvarsdóttur forstöðu-mann Menningarmiðstöðvar Þingeyinga og safnstjóra Myndlistarsafns Þingeyinga með verkin tvö á milli sín.
Að þessu tilefni verður annað verkanna til sýnis í Sjóminja-safninu á Húsavík og frítt verður inn fyrir gesti og gangandi á Sjómannadaginn, sunnudaginn 12. júní nk.
Margrét Hólm og Sigríður með málverkin tvö á milli sín.
Ljósmynd aðsend.