Sigríđur Örvarsdóttir nýr safnstjóri Listasafnsins á Akureyri.Almennt - - Lestrar 85
Sigríđur Örvarsdóttir safnstjóri og forstöđumađur Menningar-miđstöđvar Ţingeyinga hefur veriđ ráđin nýr safnstjóri Listasafnsins á Akureyri.
Sigríđur er međ MA gráđu í safnafrćđi frá Háskóla Íslands (2018), BA gráđu í textílhönnun frá Seminaret for Kunst og Haandvćrk í Danmörku (2001), ásamt meistaranámi í prjónahönnun frá Academie Royale des Beux-Arts (2014) og viđbótardiplómu í hagnýtri jafnréttisfrćđi frá Háskóla Íslands (2009). Auk ţess er hún međ kennsluréttindi í grunn- og framhaldsskóla (2001).
Sigríđur hefur starfađ sem safnstjóri og forstöđumađur Menningarmiđstöđvar Ţingeyinga frá árinu 2022 og veitir sem slík forstöđu Myndlistarsafni Ţingeyinga en safneign ţess telur um 1.900 verk. Í starfi sínu stýrir hún starfseminni og ber ábyrgđ á öllum ţáttum rekstrar, allri fjárhags- og verkefnaáćtlanagerđ, bókhaldi, mannauđsmálum, rekstri fasteigna og faglegu starfi sjö annarra safneigna og fjögurra sýningarstađa.
Sigríđur starfađi sem verkefnastjóri sýninga hjá Akureyrarbć sumariđ 2021. Í ţví starfi sinnti hún sýningagerđ, rannsóknarvinnu og kynningarmálum. Árin 2019 til 2020 var hún sjálfstćtt starfandi ráđgjafi viđ gerđ safnastefnu Akureyrarbćjar. Hún gegndi starfi safnafulltrúa Listasafnsins á Akureyri áriđ 2012 og árin 2010 og 2012 starfađi hún sem verkefnastjóri samsýninga og ritstjóri safnahandbóka fyrir söfn á Norđur- og Norđausturlandi. Árin 2008 til 2012 starfađi hún sem safnkennari viđ Minjasafniđ á Akureyri.
Sigríđur hefur reynslu af kennslu í list- og hönnunargreinum á öllum skólastigum innan lands sem utan, m.a. hjá Listaháskóla Íslands og Marbella Design Academy á Spáni. Hún hefur tekiđ ţátt í alheimsţingi ICOM, alţjóđaráđs safna og veriđ fulltrúi ţess í Rannsóknarsetri í safnafrćđum viđ Háskóla Íslands.
Alls bárust 14 umsóknir um starfiđ.