Tap en búist við viðsnúningi strax á næsta ári

Tekjur Norðursiglingar hf., sem rekur meðal annars umfangsmikla hvalaskoðun á Húsavík, námu 171 milljón króna í fyrra samanborið við 657,8 milljónir króna

Tap en búist við viðsnúningi strax á næsta ári
Fréttatilkynning - - Lestrar 261

Tekjur Norðursiglingar hf., sem rekur meðal annars umfangsmikla hvalaskoðun á Húsavík, námu 171 milljón króna í fyrra samanborið við 657,8 milljónir króna á árinu áður.

Rekstrartap, EBITDA, nam aðeins 45 þúsund krónum en tap fyrirtækisins eftir afskriftir og fjármagnsgjöld nam 143,6 milljónum króna.

Í tilkynningu segir að fyrirtækið hafi glímt við áskoranir tengdar heimsfaraldrinum, líkt og önnur ferðaþjónustufyrirtæki um allan heim, sem setti mark sitt á afkomu ársins. Fyrirtækið nýtti sér úrræði stjórnvalda á tímabilinu og greip til víðtækra hagræðingaraðgerða s.s eignasölu, uppsagna, fjárhagslegrar endurskipulagningar og frestunar afborgana á skuldum.

Seldi hlut í sjóböðum

Fyrirtækið seldi 29% hlut sinn í Sjóböðunum á Húsavík (GeoSea) í byrjun þessa árs og mun salan hafa verulega jákvæð áhrif á afkomu fyrirtækisins á þessu ári. Þá benda bókanir og fyrirspurnir til þess að rekstrarumhverfi Norðursiglingar verði mun hagfelldara á næstunni. Stjórnendur gera ráð fyrir að afkoma fyrirtækisins stórbatni strax á þessu ári og hagnaður verði af rekstrinum á næsta ári.

Ný varanleg sögusýning opnuð fyrr í þessum mánuði

Starfsfólk Norðursiglingar nýtti tímann í faraldrinum í bæði viðhald skipa og fasteigna en einnig í ný uppbyggingarverkefni sem munu laða ferðamenn að Skjálfanda. Í byrjun júlí var til að mynda opnuð varanleg útgerðarsögusýning í Strandmenningarsetri Norðursiglingar á Gamla Bauk á Húsavík. Þar má sjá myndir af bátum, áhöfnum bátanna auk mynda af síldarsöltun og ýmsu sem tengdist lífinu á síldarplaninu. Einnig má sjá mannlífsmyndir sem skarta Húsvíkingum og fleirum, um og upp úr miðri síðustu öld. Þá hefur verið opnuð glæsileg stafræn útgáfa af sýningunni sem gerir gestum kleift að skoða alla söguna og enn fleiri myndir á einfaldan hátt í síma eða spjaldtölvu.

Eigið fé nú 140 milljónir króna

Eignir Norðursiglingar námu rúmlega 1,4 milljörðum króna í árslok 2020 og var eigið fé rúmlega 140 milljónir, sem er töluverð lækkun frá árinu áður. Launakostnaður fyrirtækisins dróst verulega saman og nam 72 milljónum, samanborið við 258 milljónir árið áður, en stöðugildum fækkaði um helming á milli árana 2019-2020, eða úr 30,5 í 14.

Stærsti hluthafi Norðursiglingar er Eldey eignarhaldsfélag, sem sérhæfir sig í fjárfestingum í ferðaþjónustufyrirtækjum, en meirihluti hlutafjár er í eigu stofnenda félagsins og stjórnarformanns.

 


  • Herna

640.is | Ábyrgðarmaður Hafþór Hreiðarsson | vefstjori@640.is | Sími: 895-6744