Stofnun Hagsmunasamtaka barna á Húsavík

Þann 1.júlí síðastliðinn kom saman hópur foreldra í tilefni af stofnun Hagsmunasamtaka barna á Húsavík.

Stofnun Hagsmunasamtaka barna á Húsavík
Almennt - - Lestrar 109

Þann 1.júlí síðastliðinn kom saman hópur foreldra í tilefni af stofnun Hagsmunasamtaka barna á Húsavík. Hvatinn að stofnun samtakanna var að nýta samtakamátt foreldra, forráðamanna og samfélagsins alls til þess að bæta lífskjör barna á svæðinu, hvort sem það snýr að öryggi, menntun, afþreyingu eða tómstundum.

Í auglýsingu um stofnfundinn stendur skrifað: Við getum gert svo margt gott ef við stöndum saman og beitum okkur á jákvæðan hátt í þeim málum sem þarf að taka á í nærsamfélaginu hvað varðar börnin okkar. Við sjáum til dæmis fyrir okkur að vinna saman að því að stuðla að fjölbreyttari tómstundum og afþreyingu fyrir þau börn sem ekki finna sig í því sem er í boði nú þegar, veita aðhald i öryggismálum og eiga yfirhöfuð gott samtal við sveitarstjórn og skólayfirvöld, um allt sem þar fer fram.

Færum umræðurnar úr skúmaskotum yfir i ljósið og beitum okkur, í stað þess að barma okkur i litlum hópum úti um allan bæ.

Vel var mætt á fundinn og alls skráðu sig 21 í samtökin. Það var kosið í stjórn samtakanna, auk þess sem samþykktir samtakanna voru skrifaðar. Það eru þau Axel Árnason, Brynja Rún Benediktsdóttir, Elena Martinez, Elva Héðinsdóttir og Svava Hlín Arnarsdóttir sem skipa stjórnina og Benedikt Þorri Sigurjónsson, Guðný Ósk Agnarsdóttir og Sigurborg Ósk Haraldsdóttir sem skipa varastjórn.

Stjórn skipti með sér verkum á fyrsta stjórnarfundi eftir stjórnarkjör.

Þá sendi fundurinn frá sér ályktun er varðar öryggi barna, þar sem hvatt er til þess að unnin verði stefna og aðgerðaáætlun um umferðaröryggi.

Ályktunin er svohljóðandi:

Hagsmunasamtök Barna á Húsavík leggja til að unnin verði stefna um umferðaröryggi barna á Húsavík og í framhaldinu aðgerðaáætlun sem tryggir að allt skipulag, öll hönnun og allar framkvæmdir innan Húsavíkur verði gerðar með hag barna að leiðarljósi. Markvisst verði unnið að því að bæta umferðaröryggi og aðstöðu fyrir öll börn, óháð ferðamáta.

Samtökin eru með Facebook-síðuna: Hagsmunasamtök barna á Húsavík, auk þess sem hægt er að senda tölvupóst á hsb.husavik@gmail.com til þess að ganga í samtökin.

Skráning í samtökin er gjaldfrjáls og ekki eru innheimt félagsgjöld.Samtökin hvetja foreldra og öll þau sem láta sig hagsmuni barna á svæðinu varða, að skrá sig
í samtökin.

 

 

  • Herna

640.is | Ábyrgðarmaður Hafþór Hreiðarsson | vefstjori@640.is | Sími: 895-6744