Smári hraðskákmeistari Goðans í áttunda skipti

Smári Sigurðsson vann öruggan sigur á Hraðskákmóti Goðans 2023 sem fram fór á Húsavík í gær.

Smári hraðskákmeistari Goðans í áttunda skipti
Íþróttir - - Lestrar 116

Ingimar, Smári og Aðalsteinn Jóhann.
Ingimar, Smári og Aðalsteinn Jóhann.

Smári Sigurðsson vann öruggan sigur á Hraðskákmóti Goðans 2023 sem fram fór á Húsavík í gær.

Smári vann allar sínar skákir fyrir utan eina, sem lauk með jafntefli. Smári fékk 10,5 vinninga af 11 mögulegum á mótinu !

Aðalsteinn Jóhann Friðriksson og Ingimar Ingimarsson komu heldur betur á óvart á mótinu. Aðalsteinn Jóhann landaði 9 vinningum á sínu fyrsta skákmóti hjá Goðanum. Sá árangur dugði til silfurverðlauna. 8 vinningar Ingimars Ingimarssonar á mótinu, voru líka óvæntir og þeir dugðu til bronsverðlauna. Aðalsteinn og Ingimar voru báðir stiglausir með öllu fyrir mótið og skutu þannig mörgum vönum skákmönnum Goðans, ref fyrir rass.

Tímamörk voru af gamla skólanum, 5 mín sléttar og tefld var einföld umferð allir við alla. Viðar Njáll Hákonarson og Óskar Páll Davíðsson voru að taka þátt í sínu fyrsta hraðskákmóti hjá Goðanum og náðu báðir ágætum árangri. Fimm stiglausir skákmenn tóku þátt í mótinu og lítur út fyrir að allir hafi þeir unnið sér inn sín fyrstu hraðskákstig, sem birt verða 1. janúar 2024. 

Mótið á chess-manager.


  • Herna

640.is | Ábyrgðarmaður Hafþór Hreiðarsson | vefstjori@640.is | Sími: 895-6744