Samið um flug til Húsa­víkur og Vest­manna­eyja

Vegagerðin hefur fyrir hönd ríkisins samið við flugfélagið Norlandair um að fljúga fjórar flugferðir í viku milli Húsavíkur og Reykjavíkur á tímabilinu

Samið um flug til Húsa­víkur og Vest­manna­eyja
Aðsent efni - - Lestrar 136

Vegagerðin hefur fyrir hönd ríkisins samið við flugfélagið Norlandair um að fljúga fjórar flugferðir í viku milli Húsavíkur og Reykjavíkur á tímabilinu 16. desember 2024 til 15. mars 2025. 

Í tilkynningu segir að unnið sé að undirbúningi en nánari upplýsingar verður hægt að finna á heimasíðu flugfélagsins innan skamms, www.norlandair.is

Sömuleiðis hefur verið samið við flugfélagið Mýflug um að fljúga til Vestmannaeyja fjórum sinnum í viku frá 1. desember 2024 til og með 28. febrúar 2025. Samningurinn hefur þegar tekið gildi og hægt er að bóka flug á vef Mýflugs, www.myflug.is.

Umræddar flugleiðir eru styrktar til að tryggja tímabundið lágmarksþjónustu á flugleiðinni á meðan markaðslegar forsendur eru ekki til staðar, enda flugið mikilvægt fyrir íbúa og atvinnulíf á svæðinu.


  • Herna

640.is | Ábyrgðarmaður Hafþór Hreiðarsson | vefstjori@640.is | Sími: 895-6744