Ný leikskólabygging vígð í Mývatnssveit

Leikskólinn Ylur í Mývatnssveit vígði nýja leikskólabyggingu formlega á fimmtudaginn að viðstöddu fjölmenni.

Ný leikskólabygging vígð í Mývatnssveit
Almennt - - Lestrar 321

Leikskólinn Ylur í Mývatnssveit vígði nýja leikskólabyggingu formlega á fimmtudaginn að viðstöddu fjölmenni.

Ingibjörg Helga Jónsdóttir leikskólastjóri stjórnaði vígslunni og Alma Dröfn Benediktsdóttir formaður skólanefndar og Þorsteinn sveitarstjóri fluttu ávörp.

Frá þessu segir á heimasíðu Skútustaðahrepps.

Þorsteinn hvatti Mývetninga til að vera duglega við barneignir til að fylla nýja leikskólann og auka á hamingju sveitunga. Ólafur Ragnarsson eigandi verktakans Húsheildar ehf. færði leikskólanum gjöf í tilefni dagsins eða hitaskáp og færum við honum bestu þakkir fyrir þessa höfðinglegu gjöf.

Tímamót urðu í sögu leikskólans Yls fimmtudaginn 17. október s.l. þegar ný leikskólabygging var tekin í notkun. Framkvæmdir hófust síðasta vor en verktakinn Húsheild ehf. skilaði leikskólanum af sér samkvæmt áætlun upp á dag. Óhætt er að segja að nýja byggingin sé bylting fyrir starfsemi leikskólans.

Um er að ræða timburhús á einni hæð, byggt á steyptri plötu, við grunnskólann. Nýbyggingin inniheldur m.a. þrjú deildarrými. Samhliða nýbyggingu var skipulagi eldri byggingar breytt þannig að þar er sérkennslu/fundarherbergi auk skrifstofu leikskólastjóra og undirbúningsher-bergis. Hreinlætisaðstaða barna er endurbætt og bætt við snyrtingu í forstofu. Heildarkostnaður við byggingu leikskólans var um 62 m.kr.

Forstofa leikskólans var færð og útbúin þurrkaðstaða með skápum. Heildarstarfssvæði leikskóla er 226 ferm. auk aðgengis að snyrtingu fyrir hreyfihamlaða í grunnskólabyggingu. Leik- og kennslurými ásamt sérkennsluaðstöðu er 107,7 ferm. Í leikskólanum er nýtt fráveitukerfi, þ.e. aðskilið svartvatn og grávatn.

Vel  var mætt við vígsluna enda hátíðisdagur í sögu sveitarfélagsins því nú er aðstaða leikskólans til fyrirmyndar. 

Á meðfylgjandi mynd eru v.v. Ólafur Ragnarsson verktaki og framkvæmdastjóri Húsheildar ehf., Ingibjörg Helga Jónsdóttir leikskólastjóri, Alma Dröfn Benediktsdóttir formaður skólanefndar og Þorsteinn Gunnarsson sveitarstjóri.


  • Herna

640.is | Ábyrgðarmaður Hafþór Hreiðarsson | vefstjori@640.is | Sími: 895-6744