Myndlistarsafnið hans SillaFréttatilkynning - - Lestrar 60
Verið velkomin á hátíðaropnun í minningu Húsvíska þúsundþjala-smiðsins Sigurðar Péturs Björnssonar föstudaginn 29. nóvember kl. 20-22 í Myndlistarsal á 3. hæð.
Arndís og Hilmar Árnabörn flytja lifandi tónlist
Hugguleg aðventustemning - Léttar veitingar í boði
Hlökkum til að sjá ykkur
Enginn aðgangseyrir
Sigurður Pétur Björnsson (1917-2007) eða Silli eins og hann var alltaf kallaður var þekktur maður í Þingeyjarsýslum. Hann setti mark sitt á samfélagið með áhuga sínum og eljusemi á ýmsum sviðum. Eitt af því var ljósmyndun en hann var um áratugaskeið fréttaritari Morgunblaðsins.
Silli eftirlét MMÞ merkilegt ljós-myndasafn sitt ásamt húseign og innbúi en þar á meðal var fallegt handverk og dýrmætt myndlistarsafn sem nú er hluti af Myndlistarsafni Þingeyinga.