08. nóv
Mynd dagsins - Útför Villa PálsMynd dagsins - - Lestrar 405
Mynd dagsins var tekin í dag þegar Vilhjálmur Pálsson var jarðsunginn frá Húsavíkurkirkju en hann lést þann 28. október sl.
Vilhjálmur Pálsson, eða Villi Páls eins og hann var jafnan kallaður, var einn af máttarstólpum og forystumönnum innan Íþróttafélagsins Völsungs sem og Björgunarsveitarinnar Garðars en hann kom að stofnun hennar.
Á myndinni má sjá björgunarsveitarmenn úr Garðari og blakfólk úr Völsungi standa heiðursvörð þegar kista Vilhjálms var borin úr kirkjunni.
Með því að smella á myndina er hægt að skoða hana í betri gæðum og hærri upplausn.