Grunnskólabörn á Þórshöfn gefa velferðarsjóði 100.000 krónur

„Börnin voru mjög ánægð og fannst þetta ægilegt sport að halda á ávísuninni. Þeim fannst hún svo stór,“ segir Hulda Kristín Baldursdóttir, íþróttakennari

„Börnin voru mjög ánægð og fannst þetta ægilegt sport að halda á ávísuninni. Þeim fannst hún svo stór,“ segir Hulda Kristín Baldursdóttir, íþróttakennari við Grunnskólann á Þórshöfn.

Nemendurnir og skólastjórnendur fengu loks um hádegisbil í gær afhenta ávísun upp á verðlaunafé sem þau báru úr býtum í Hreyfiviku UMFÍ og Egils Kristals sem fram fór í lok maí.

Í fréttatilkynningu segir að UMFÍ og Egils Kristall hafi efnt til sérstakrar brenniboltaáskorunar í Hreyfivikunni. Hún fól í sér að kennarar grunnskóla landsins voru hvattir til að bjóða nemendum í brennibolta og auka framboð á skemmtilegri hreyfingu. Á vegum Grunnskólans á Þórshöfn voru skráðir 17 viðburði í Hreyfiviku UMFÍ í maí og voru þeir hvergi fleiri.

Skólinn fékk í verðlaun 100.000 króna ávísun frá Egils Kristal og UMFÍ. Vinningnum fylgdi að verðlaunin skyldi gefa góðgerðarfélagi að eigin vali. Nemendur Grunnskólans á Þórshöfn í samráði við kennara ákváðu að gefa verðlaunin Velferðarsjóði Þingeyinga.

Jónas Egilsson, formaður Héraðssambands Þingeyinga (HSÞ) og sveitarstjóri Langanesbyggðar, afhenti verðlaunin og ávísunina fyrir hönd UMFÍ í dag. Viðstödd afhendinguna voru þau Hulda og skólastjórinn Hilma Steinarsdóttir. Nemendur skólans fengu svo að sjálfsögðu að leika sér með ávísunina.

Fleiri fá glaðning

Tveir aðrir skóla voru dregnir út og áttu þess kost að vinna 50.000 krónur til að gefa góðgerðarfélagi. Dregnir voru út Fellaskóli í Reykjavík og Grundaskóli á Akranesi voru dregnir sérstaklega út í brenniboltaáskoruninni. Hvor skóli hlýtur 50.000 króna ávísun Hreyfiviku UMFÍ og Kristals sem þeir ánafna góðgerðarfélagi.

Það sama gildir um skólana tvo og Grunnskóla Þórshafnar en COVID-faraldurinn hefur hamlað því að verðlaunin hafi verið afhent. Það verður gert á næstu dögum.

Hvað er Hreyfivika UMFÍ?

Hreyfivika UMFÍ er hluti af samevrópsku lýðheilsuherferðinni Now We Move. UMFÍ hefur tekið þátt í verkefninu frá árinu 2012. Markmið verkefnisins er að að fjölga þeim sem hreyfa sig reglulega, kynna fyrir fólki kosti þess að taka virkan þátt í hreyfingu á hverjum degi.

UMFÍ hvetur alla til að finna sína uppáhalds hreyfingu og stunda hana reglulega eða að minnsta kosti í 30 mínútur daglega.

Héraðssamband Þingeyinga (HSÞ) er eitt 28 sambandsaðila UMFÍ og er Ungmennafélag Langnesinga á Þórshöfn eitt aðildarfélaga HSÞ. Sambandsaðilar UMFÍ skiptast í 21 íþróttahérað og 7 ungmennafélög með beina aðild. Alls eru um 450 félög innan UMFÍ með rúmlega 270 þúsund félagsmenn.

Ljósmynd - Aðsend

Jónas Egilsson, formaður Héraðssambands Þingeyings (HSÞ) og sveitarstjóri Langanesbyggðar, afhenti þeim Huldu Kristínu Baldursdóttur, íþróttakennara, og Hilmu Steinarsdóttur, skólastjóra á Þórshöfn, verðlaunin. 

Á myndunum hér fyri neðan eru nemendur á yngsta stigi (1.-4.b) og svo hluti af 6. og 7.b. með ávísunina. 

 Ljósmynd - Aðsend

Ljósmynd - Aðsend

Með því að smella á myndirnar er hægt að skoða þær í hærri upplausn.

 

 


  • Herna

640.is | Ábyrgðarmaður Hafþór Hreiðarsson | vefstjori@640.is | Sími: 895-6744