Fleiri leiktæki, takkAlmennt - - Lestrar 166
Nemendur sjötta bekkjar Borgarhólsskóla skrifuðu Norðurþingi bréf í samstarfi við kennarana sína þar sem vænst er úrbóta á skólalóð skólans.
Lítil uppbygging í afþreyingu hefur átt sér stað í nokkur ár á lóðinni.
Krakkarnir nefna það í bréfinu að þegar þeir fara í önnur bæjarfélög til að keppa í íþróttum eins og á Akureyri, Blönduósi, Dalvík og Sauðárkróki leiki þeir sér á skólalóðum viðkomandi skóla. Þeir birtu nokkrar myndir af öðrum skólalóðum og létu fylgja bréfinu.
Auk þess nefna þeir nokkrar hugmyndir eins og körfuboltavöll, trampólín á jörðinni, kastala með rennibraut, aparólu og fleiri rólur.
Krakkarnir fóru ásamt kennurum sínum og afhentu staðgengli sveitarstjóra bréfið í fundarsal Norðurþings. (borgarholsskoli.is)