Ágæti Kjósandi – Það er komið að þér

Fyrst vil ég byrja á að þakka fyrir þær hlýju móttökur sem við frambjóðendur Flokks fólksins höfum fengið undantekningarlaust í kosningabaráttunni.

Ágæti Kjósandi – Það er komið að þér
Aðsent efni - - Lestrar 59

Sigurjón Þórðarson.
Sigurjón Þórðarson.
Fyrst vil ég byrja á að þakka fyrir þær hlýju móttökur sem við frambjóðendur Flokks fólksins höfum fengið undantekningarlaust í kosningabaráttunni.
 
Þeir kjósendur sem enn hafa ekki gert upp hug sinn eru hvattir til þess að kynna sér greinarskrif og jafnframt fara inn á heimasíðu okkar, www.flokkurfolksins.is
 
Alþingiskosningarnar 30. nóvember eru afar mikilvægar. Það liggur blessunarlega fyrir að ný ríkisstjórn mun taka við völdum í landinu. Flokkur fólksins mun greiða úr þeim málum sem út af standa í okkar góða landi.
Við það að merkja x við F á kjördag fá kjósendur í kaupbæti bætt kjör fyrir eldra fólk og markvissar aðgerðir gegn fátækt sem tryggja að landsmenn hafi úr að ráða a.m.k. 450 þúsund kr. á mánuði, skatta og skerðingarlaust.
 
Einn stærsti áhrifavaldurinn í að börn vaxa í auknum mæli upp í fátækt á Íslandi, er að stjórnvöld slepptu ekki aðeins óseðjandi græðgisvæddum leigufélögum lausum heldur stuðluðu að vexti þeirra á kostnað efnaminni heimila.  Flokkur fólksins var lengi vel eini stjórnmálaflokkurinn sem beitti sér fyrir hagsmunum leigjenda með því að setja á leigubremsu og átaki í uppbyggingu húsnæðis.
 
Í stað þess að bjóða unga fólkinu sem er að hefja búskap upp á hættulega óvissuferð vaxtaokurs og stökkbreyttra lána, þá viljum við koma með þrautreynt fyrirsjáanlegt norrænt lánafyrirkomulag á húsnæðismarkaði. Ef einhverjir ættu að búa við fyrirsjáanleika þá er það kynslóðin sem er að ala upp börnin okkar.
Flokkur fólksins er flokkur sem leggur áherslu á aukna verðmætasköpun, en vill skipta þeim með sanngjarnari hætti en gert hefur verið.
 
Norðlendingar geta treyst því að við í Flokki fólksins munum standa vörð um hagsmuni þeirra í hvívetna, enda er það hagur Íslands að byggðirnar blómstri um landið allt.
 
Eflum bjartsýni og þor – Kjósum Flokk fólksins
 
Sigurjón Þórðarson oddviti Flokks fólksins í norðausturkjördæminu

  • Herna

640.is | Ábyrgðarmaður Hafþór Hreiðarsson | vefstjori@640.is | Sími: 895-6744