Sá gamli grćni: Baldur Ingimar Ađalsteinsson

Baldur Ingimar Ađalsteinsson er Sá gamli grćni ţessa vikuna. Baldur er öllum Völsungum minnugur en hann ólst upp í grćnu treyjunni sem og hóf sinn feril í

Sá gamli grćni: Baldur Ingimar Ađalsteinsson
Íţróttir - Rafnar Orri Gunnarsson - Lestrar 692 - Athugasemdir ()

Balli Kúta
Balli Kúta

Baldur Ingimar Aðalsteinsson er Sá gamli græni þessa vikuna. Baldur er öllum Völsungum minnugur en hann ólst upp í grænu treyjunni sem og hóf sinn feril í meistaraflokki hjá Völsungi. Baldur á að baki landsleiki með U21 & A-landsliðinu.

Eftir að hafa spilað í tvö ár í meistaraflokki Völsungs ákvað hann að söðla um og spilaði með liðum á borð við ÍA, Val, Ürdingen og Víking R. Hér er Balli Kúta, gjörið svo vel!


Hvaða ár spilaðir þú fyrir Völsung ?
Ég er borinn og barnfæddur Völsungur, spilaði í meistaraflokk á árunum 1996-1998. Fyrsti leikur minn í meistaraflokki var heimaleikur á móti Fram í 2. deildinni árið 1996.

Eftirminnilegasti leikur fyrir félagið ?
Árið 1990 mættum við Fylki í riðlakeppninni á Tommamótinu í Vestmannaeyjum, Fylkir var með ógnarsterkt lið sem flestir óttuðust. Við Völsungar vorum einnig einstaklega vel mannaðir og úr varð einn rosalegasti leikur sem ég hef spilað. Leikurinn var tekinn upp af Stöð 2 og hittumst við félagarnir reglulega og horfum á hann. Leiknum lauk með óverðskulduðu 2-2 jafntefli. Verð enn pirraður yfir þessu jafntefli.

Bestu samherjar hjá Völsungi ?
Þeir voru margir en ég verð að taka bekkjarbræður mína úr 1980 árgangnum út. Menn eins og Ómar Þorgeirsson (einn hæfileikaríkasti leikmaður í sögu félagsins), Magnús Halldórsson (besta vítaskytta sem félagið hefur átt, fyrir utan Jónas Hallgríms auðvitað),  Andri Valur (einstakur keppnismaður) og Ellert Stefánsson (það fór aldrei maður og bolti framhjá Lertaranum).

Skemmtileg saga frá þessum tíma ?
Vetur einn  þegar ég var í fjórða eða þriðja flokki fékk þjálfari okkar á þeim tíma þá snilldar hugmynd að senda okkur strákana  upp á Húsavíkurfjall í stað þess að hlaupa okkar hefðbundna hring. Þjálfarinn var leikmaður í meistaraflokki sem hafði komið til liðs við Völsung að sunnan. Við vorum nú ýmsu vanir þannig að við lögðum af stað upp melinn. Fyrir ofan stallalyftuna var stefnan sett þráðbeint upp á topp. Fljótlega hætti okkur flestum að lítast á blikuna enda var veðrið að versna og sífellt varð erfiðara að ná tryggri fótfestu.  Þegar það voru svona u.þ.b. 30 metrar eftir vorum við flestir nánast komnir í sjálfheldu og héldum dauðataki í íshelluna sem umlauk toppinn. Ég gleymi því seint að sjá félaga einn af öðrum hverfa mér sjónum þegar þeir fikruðu sig  upp á toppinn. Ég var einn af þeim síðustu sem náði alla leið. Sjónin sem beið manns er upp var komið var einstök, einn okkar hafði náð taki á mastri og sá næsti hélt í lappirnar á honum og svo koll af kolli. Heilt knattspyrnulið Völsungs barðist þarna um eins og  veifa á fána í stormviðri.  Við vorum aldrei aftur sendir upp á fjallið.

vinir

Hvað veistu um félagið í dag og starfsemi þess ?
Ég tel mig vera vel inn í starfsemi félagsins. Á skyldmenni í mörgu flokkum Völsungs þannig að maður reynir að fylgjast vel með því góða starfi sem á sér stað í yngri flokkum félagsins. Umfjöllunin í kringum meistaraflokka Völsungs er náttúrlega kominn á þann stall að mikill sómi er að og er til eftirbreytni fyrir önnur lið. Græni herinn er „different class“  í mínum huga.

Hvaða skoðun hefur þú á gervigrasvellinum sem var vígður á dögunum ?
Mér finnst það alveg frábært. Þetta verður algjör bylting á aðstöðu félagsins og ætti að skila sér í betri leikmönnum fyrir félagið og setja frekari stoðir undir Völsung. Hlakka mikið til að sjá og prufa völlinn þegar ég kem heim um helgina í göngur.

Hvernig sérðu framtíð félagsins fyrir þér ?
Framtíð Völsungs er nú sem fyrr björt enda er þetta einstakt félag með gott bakland á besta stað landsins.

Lokaorð til Völsunga um heim allan ?
Stuðningur okkar er einstaklega mikilvægur nú á lokasprettinum. Látum okkur ekki vanta á völlinn og hvetjum okkar lið. Þeir sem eiga ekki heimangengt eða eru órafjarri facebook-stuðningurinn skiptir einnig máli. Áfram Völsungur, sigrum þessa deild!!!
b

Eldri greinar:
Sá gamli græni: Jónas Hallgrímsson (1.tbl)
Sá gamli græni: Sigmundur Hreiðarsson (2.tbl)
Sá gamli græni: Ásgeir Baldursson (3.tbl)
Sá gamli græni: Birkir Vagn Ómarsson
(4.tbl)
Sá gamli græni: Bjarni Pétursson (5.tbl)
Sá gamli græni: Sigþór Júlíusson (6.tbl)
Sá gamli græni: Hjörtur Júlíus Hjartarson (7.tbl)
Sá gamli græni: Hermann Aðalgeirsson (8.tbl)


Athugasemdir

  • Herna

Ingvar Björn-Rafnar Orri- Bjarki Breiđfjörđ