Völsungur sigraði Þrótt Nes í forkeppninni

Völsungur og Þróttur Neskaupstað mættust í forkeppni úrslitakeppninnar um Íslandsmeistaratitil kvenna á Húsavík í gærkveldi og fóru þær grænu með sigur af

Völsungur sigraði Þrótt Nes í forkeppninni
Íþróttir - - Lestrar 379

Völsungur og Þróttur Neskaupstað mættust í forkeppni úrslitakeppninnar um Íslandsmeistaratitil kvenna á Húsavík í gærkveldi og fóru þær grænu með sigur af hólmi.

Völsungur var í 4. sæti deildarinnar en Þróttur Nes í því sjöunda. Þau mættust því í þessum fyrsta leik forkeppninnar þar sem að sigurvegarinn heldur í vonina um þátttöku í úrslitakeppninni.

Einungis einn leikur er spilaður í þessari umferð og því um hreinan úrslitaleik að ræða sem Völsungur vann 3-1. Lesa má nánar um leikinn á Blakfréttir.is

Völsungur tryggir sér þar með áframhaldandi þátttöku í baráttunni um Íslandsmeistaratitilinn en Þróttur Nes hefur lokið keppni þetta tímabilið.

Völsungur mætir Þrótti Reykjavík, sem vann Álftaness í gærkveldi, í Íþróttahöllinni á Húsavík nk. fimmtudagskvöld.

Sigurvegari úr því einvígi mætir svo KA í undanúrslitum.


  • Herna

640.is | Ábyrgðarmaður Hafþór Hreiðarsson | vefstjori@640.is | Sími: 895-6744