Völsungur náði í sitt fyrsta stig í KjarnafæðismótinuÍþróttir - - Lestrar 524
Völsungur mætti Þór í Kjarnafæðismótinu í gær en leikið var á gervigrasvellinum á Húsavík.
Völsungur var án stiga fyrir leikinn en Þór var búinn að næla sér í sex stig.
Eftir markalausan fyrri hálfleik komust Þórsarar yfir með marki Arons Kristófers Lárussonar úr aukaspyrnu á 56. mínútu leiksins.
Daníel Már Hreiðarsson jafnaði fyrir Völsung mínútu síðar og Bjarki Baldvinsson fyrirliði Völsungs kom þeim grænu síðan yfir þegar hann skoraði á 68. mínútu leiksins.
Þórsarar jöfnuðu aftur um tíu mínútum síðar með marki Aðalgeirs Axelssonar og 2-2 jafntefli niðurstaðan.
Völsungur náði þarna í sitt fyrsta stig og Þór kominn með sjö stig. Bæði lið hafa leikið þrjá leiki.
Hér má lesa leiksskýrslu á vef KSÍ
Jóhann Helgi Hannesson fyrirliði Þórs skallar hér boltann að marki Völsungs.
Stefán Óli Hallgrímsson markvörður Völsungs grípur boltann.
Aron Kristófer Lárusson annar markaskorara Þórs í baráttu við Guðmund Óla Steingrímsson. Gaman að geta þess að Aron Kristófer lék með Völsungi í 2. deildinni sumarið 2016.
Aron Kristófer Lárusson skorar hér fyrsta mark leiksins úr aukaspyrnu.
Völsungar fagna marki Daníels Más Hreiðarssonar.
Bjarki Baldvinsson horfir hér á eftir boltanum í netið hjá Þór.