Völsungur náði í sitt fyrsta stig í Kjarnafæðismótinu

Völsungur mætti Þór í Kjarnafæðismótinu í gær en leikið var á gervigrasvellinum á Húsavík.

Daníel Már horfir á eftir boltanum í netið hjá Þór
Daníel Már horfir á eftir boltanum í netið hjá Þór

Völsungur mætti Þór í Kjarnafæðismótinu í gær en leikið var á gervigrasvellinum á Húsavík.

Völsungur var án stiga fyrir leikinn en Þór var búinn að næla sér í sex stig.

Eftir markalausan fyrri hálfleik komust Þórsarar yfir með marki Arons Kristófers Lárussonar úr aukaspyrnu á 56. mínútu leiksins.

Daníel Már Hreiðarsson jafnaði fyrir Völsung mínútu síðar og Bjarki Baldvinsson fyrirliði Völsungs kom þeim grænu síðan yfir þegar hann skoraði á 68. mínútu leiksins.

Þórsarar jöfnuðu aftur um tíu mínútum síðar með marki Aðalgeirs Axelssonar og 2-2 jafntefli niðurstaðan.

Völsungur náði þarna í sitt fyrsta stig og Þór kominn með sjö stig. Bæði lið hafa leikið þrjá leiki. 

Hér má lesa leiksskýrslu á vef KSÍ

Völsungur - Þór 2-2

Jóhann Helgi Hannesson fyrirliði Þórs skallar hér boltann að marki Völsungs.

Völsungur-Þór 2-2

Stefán Óli Hallgrímsson markvörður Völsungs grípur boltann.

Völsungur-Þór 2-2

Aron Kristófer Lárusson annar markaskorara Þórs í baráttu við Guðmund Óla Steingrímsson. Gaman að geta þess að Aron Kristófer lék með Völsungi í 2. deildinni sumarið 2016.

Völsungur-Þór 2-2

Aron Kristófer Lárusson skorar hér fyrsta mark leiksins úr aukaspyrnu.

Völsungur-Þór 2-2

Völsungar fagna marki Daníels Más Hreiðarssonar.

Völsungur-Þór 2-2

Bjarki Baldvinsson horfir hér á eftir boltanum í netið hjá Þór.


  • Herna

640.is | Ábyrgðarmaður Hafþór Hreiðarsson | vefstjori@640.is | Sími: 895-6744