Ungir Völsungar fengu hvatningarverðlaun

Í gær fengu ungir Völsungar hvatningarverðlaun félagsins fyrir framúrskarandi árangur í íþrótt sinni.

Ungir Völsungar fengu hvatningarverðlaun
Íþróttir - - Lestrar 640

Karen Linda og Fannar Ingi Sigmarsbörn.
Karen Linda og Fannar Ingi Sigmarsbörn.

Í gær fengu tólf ungir Völsungar hvatningarverðlaun félagsins fyrir framúrskarandi árangur í íþrótt sinni.

Verðlaunin voru veitt á viðburðinum Íþróttafólk Völsungs sem fram fór í Skjálfanda, sal Fosshótels Húsavíkur.

Það var Margrét Hólm Valsdóttir, útibússtjóri Íslandsbanka á Húsavík, sem veitti verðlaunin en bankinn gaf þau. 

Hvatningaverðlaun Völsungs

Arnhildur Hrönn Annýjardóttir og Jakob Fróði Karlsson.

Bardagaíþróttir.

Hvatningaverðlaun Völsungs

Hjalti Karl Jónsson og Heiðdís Edda Lúðvíksdóttir.

Blak.

Hvatningaverðlaun Völsungs

Berta María Björnsdóttir og Magnús Máni Sigurgeirsson.

Fimleikar.

Hvatningaverðlaun Völsungs

 Jóna Björg Jónsdóttir og Elmar Aðalsteinn Friðriksson. 

Knattspyrna.

Hvatningaverðlaun Völsungs

Karen Linda Sigmarsdóttir og Fannar Ingi Sigmarsson.

Skíði.

Hvatningaverðlaun Völsungs

Ester Eva Ingimarsdóttir og Guðmundur Kjartan Sigurðsson.

Sund.

Með því að smella á myndirnar er hægt að fletta þeim og skoða í stærri upplausn


  • Herna

640.is | Ábyrgðarmaður Hafþór Hreiðarsson | vefstjori@640.is | Sími: 895-6744