03. jún
Tap í GarðinumÍþróttir - - Lestrar 328
Völsungar sóttu Víði heim í Garðinn í gær en leikið var á Nesfisk-vellinum.
Heimamenn komust yfir þegar um tuttugu mínútur voru búnar með marki Helga Þórs Jónssonar.
Guðmundur Óli Steingrímsson jafnaði strax á eftir með marki úr vítaspyrnu.
Ekki liðu margar mínútur þangað til að heimamenn komust aftur yfir og þar var að verki Atli Freyr Ottesen Pálsson.
Þannig var staðan þegar gengið var til leikhlés.
Völsungar náðu ekki að koma knettinum í markið í síðari hálfleik en það gerðu heimamenn þegar 7-8 mínútur voru til leiksloka. Þá skoraði Atli Freyr sitt annað mark og gulltryggði sigur Víðismanna.