Tap fyrir toppliði KAÍþróttir - - Lestrar 543
Völsungur tók í kvöld á móti liði KA í Mizunodeild kvenna í blaki, Völsungur átti harma að hefna þar sem KA hafði unnið fyrsta leik þessara liða á Akureyri 3-0.
Á Blakfréttir.is segir að leikurinn hafi þó ekki byrjaði ekki vel fyrir heimastúlkur þar sem það var lið KA sem var mun sterkara í byrjun leiks KA liðið þjarmaði að Völsungi og átti heimaliðið fá svör við sterkum leik KA sem vann fyrstu hrinuna 25-16.
Völsungur gafst þó ekki upp og náði að bæta leik sinn til muna í annari hrinunni. KA var í vandræðum með möttökuna hjá sér og nýtti Völsungur sér það til hins ýtrasta og vann hrinuna 25-23 og jafnaði þar með leikinn.
KA ætlaði þó ekki að gefa neitt eftir og þær svöruðu fyrir sig með því að vinna næstu tvær hrinur 25-17 og 25-23. KA tryggði sér þar með sigur í leiknum 3-1 og tekur 3 stig með sér heim til Akureyrar.
Paula Del Olmo var stigahæst í leiknum í dag með 15 stig á meðan félagi hennar í KA Helena Kristín skoraði 13 stig. Hjá Völsungi voru það Rut Gomez og Sladjana sem voru atkvæðamestar með 11 stig hvor.
Rut Gomez skoraði 11 stig í leiknum líkt og Sladjana þjálfari Völsungs.
Paula Del Olmo leikmaður KA var stigahæst í leiknum í kvöld með 15 stig.
Völsungar fagna.
KA fagnar sigri í leiknum.
Með því að smella á myndirnar er hægt að fletta þeik og skoða í stærri upplausn.