Sveitarstjórn Þingeyjarsveitar skorar á AlþingiAðsent efni - - Lestrar 482
Sveitarstjórnar Þingeyjarsveitar samþykkti á fundi sínum í gær eftirfarandi áskorun til Alþingis vegna Vaðlaheiðarganga:
"Sveitarstjórn Þingeyjarsveitar skorar á Alþingi Íslendinga að samþykkja frumvarp fjármálaráðherra um fjármögnun Vaðlaheiðarganga hið fyrsta, en tilboð í gerð ganganna rennur út 14. júní nk. Tafir á verkefninu hafa þegar valdið umtalsverðum skaða.
Gerð ganganna er mikilvæg samgöngubót fyrir alla þá sem ferðast um Norðurland og eru ein af forsendum búsetu og jákvæðrar
byggðaþróunar. Göngin eru þjóðhagslega hagkvæm, bæta umferðaröryggi, stytta leiðir, efla innviði dreifðra byggða, hafa
áhrif á atvinnuuppbyggingu og skapa nauðsynleg atvinnutækifæri, minnka atvinnuleysi og tengja svæði.
Sveitarstjórn Þingeyjarsveitar þykir miður hvernig reynt hefur verið að afvegaleiða umræðuna um Vaðlaheiðargöng með ýmsum
hætti. Minnt er á að um er að ræða flýtiframkvæmd. Áréttað er að ríkissjóður ábyrgist fjármögnun
framkvæmdanna. Lánin verða greidd af veggjöldum en ekki úr ríkissjóði. Framkvæmdin tekur því ekki fé frá öðrum
brýnum verkefnum og þeir fjármunir sem ætlaðir eru í gerð ganganna munu ekki nýtast öðrum framkvæmdum eða brýnum
málaflokkum. Vert er að benda á að beinar og óbeinar tekjur ríkissjóðs á framkvæmdatímanum geta orðið verulegar.
Þá fjármuni má nota í önnur brýn verkefni í þágu samfélagsins. Áhættan af framkvæmdunum er ekki eins mikil
og haldið hefur verið fram og mun ekki falla öll á ríkissjóð. Aðrir sem leggja fram hlutafé, sveitarfélög og einkaaðilar, hafa
trú á verkefninu og forsendum þess og hætta þar með sínum fjármunum í verkefnið. Það eru einnig miklir hagsmunir í
húfi fyrir þá.
Íbúar svæðisins eru reiðubúnir að taka á sig að greiða veggjöld til viðbótar þeim sköttum sem á þá
eru lagðir svo að unnt sé að flýta framkvæmdum við Vaðlaheiðargöng. Sveitarstjórn Þingeyjarsveitar hvetur þingmenn til að
samþykkja heimild til að fjármagna framkvæmdina en bregða ekki fæti fyrir þessa brýnu framkvæmd sem mun hafa í för með sér
jákvæða innspýtingu í atvinnulíf þjóðarinnar."