16. júl
Sigurganga Völsungskvenna heldur áframÍþróttir - - Lestrar 603
Völsungur tók á móti Álftanesi sl. laugardag í 2. deild kvenna.
Völsungur hafði fyrir leikinn unnið þrjá leiki í röð og sigurgangan hélt áfram því Marta Sóley Sigmarsdóttir skoraði eina mark leiksins í fyrri hálfleik.
Völsungur er í þriðja sæti 2. deilda með 15 stig, þremur stigum frá toppliði Tindastóls en stöðuna má sjá hér
Markaskorari Völsungs, Marta Sóley Sigmarsdóttir, í leik með Völsungi fyrr í sumar.