29. okt
Sæþór genginn til liðs við KAÍþróttir - - Lestrar 630
Sæþór Olgeirsson skrifaði í morgun undir samning við KA á Akureyri sem gildir út árið 2019.
Sæþór er 19 ára sóknarmaður sem fór hreinlega á kostum í sumar með Völsungi og var langmarkahæstur í 2. deildinni með 23 mörk í 21 leik.
Í tilkynningu frá KA segir að þó nokkur félög hafi verið eftir Sæþóri enda spennandi leikmaður þar á ferð en Sæþór ákvað að taka slaginn með KA og verður gaman að fylgjast með honum í Pepsi-deildinni næsta sumar.
Sæþór er kraftmikill markaskorari sem KA bindur miklar vonir við í framtíðinni.
Sæþór bætist þar með í góðan hóp Völsunga sem spila fyrir KA.