18. maí
Mynd dagsins - Fyrsta skemmtiferðaskip sumarsinsMynd dagsins - - Lestrar 145
Mynd dagsins var tekin í gærmorgun þegar fyrsta skemmtiferðaskip sumarsins kom til Húsavíkur.
þar var á ferðinni Hamburg sem hefur heimahöfn í Nassau á Bahamaeyjum.
Skipið er 144 metra langt og mælist 15,067 GT að stærð og tekur 420 farþega.
Hamburg var sem áður segir fyrsta skipið sem kemur til Húsavíkur þetta sumarið en bókaðar eru um fjörutíu komur í sumar. Það er þó einungis áætlun sem getur breyst á báða vegu.
Hamburg hélt ferð sinni áfram síðdegis.
Með því að smella á myndina er hægt að skoða hana í betri upplausn.