Landslið kjötiðnaðarmanna á leið á sitt fyrsta stórmót

Landslið kjötiðnaðarmanna heldur á sitt fyrsta stórmót sem verður haldið í Sacramento í Californiu í Bandaríkjunum.

Mynd frá síðustu æfingu landsliðsins.
Mynd frá síðustu æfingu landsliðsins.

Landslið kjötiðnaðarmanna heldur á sitt fyrsta stórmót sem verður haldið í Sacramento í Californiu í Bandaríkjunum.

Frá þessu segir á vef Kjarnafæðis-Norðlenska.

"Við hjá Kjarnafæði-Norðlenska erum gríðarlega stolt af því að eiga tvo landsliðsmenn en það eru þeir Stefán Einar Jónsson og Róbert Ragnar Skarphéðinsson. 13 þjóðir keppa og er Ísland eina Norðulandaþjóðin sem tekur þátt".

Keppnin heitir World Butcher Challenge og fer fram laugardaginn 3.september kl. 18:00 - 21:15 á íslenskum tíma.

Hægt verður að fylgjast með í beinni hér: https://bit.ly/WBC2022Livestream


  • Herna

640.is | Ábyrgðarmaður Hafþór Hreiðarsson | vefstjori@640.is | Sími: 895-6744