Kjaradeilu vísað til Ríkissáttasemjara

Sjómannadeild Framsýnar hefur samþykkt að vísa kjaradeilu félagsins við Svæðisfélagið Klett, félags smábátaeigenda frá Ólafsfirði að Tjörnesi til

Kjaradeilu vísað til Ríkissáttasemjara
Aðsent efni - - Lestrar 555

Grásleppusjómenn taka upp netin.
Grásleppusjómenn taka upp netin.

Sjómannadeild Framsýnar hefur samþykkt að vísa kjaradeilu félagsins við Svæðisfélagið Klett, félags smábátaeigenda frá Ólafsfirði að Tjörnesi til Ríkissáttasemjara.

Um er að ræða kjarasamning fyrir sjómenn á smábátum að 15 brúttótonnum á Húsavík. Viðræður samningsaðila hafa staðið yfir í nokkra mánuði með hléum. Sjómannadeild Framsýnar telur fullreynt að ná samningi nema með aðkomu Ríkissáttasemjara. Þess vegna samþykkti stjórn Sjómannadeildar Framsýnar á fundi miðvikudaginn 16. maí að vísa málinu til Ríkissáttasemjara.

Sjómannadeildin leggur mikið upp úr því að ná kjarasamningi enda slíkur samningur ekki til í dag sem er ólíðandi með öllu. (Fréttatilkynning)


  • Herna

640.is | Ábyrgðarmaður Hafþór Hreiðarsson | vefstjori@640.is | Sími: 895-6744