Kiwanismenn afhentu 7 ára börnum reiðhjólahjálma

Félagar í Kiwanisklúbbnum Skjálfanda afhentu í gær öllum 7 ára börnum á Húsavík reiðhjólahjálma að gjöf.

Félagar í Kiwanisklúbbnum Skjálfanda afhentu í gær öllum 7 ára börnum á Húsavík reiðhjóla-hjálma að gjöf.

Áður höfðu þeir afhent hjálma til barna í Lundi (Kópaskeri), Raufar-höfn og Þórshöfn.

Kiwanismenn hafa afhent sjör ára börnum hjálma allt frá árinu 1996 og var þetta því í 28 skipti sem Skjálfandafélagar afhenda hjálma.

Fimm árum áður byrjuðu Kaldbaks félagar á Akureyri að afhenda hjálma en það var svo árið 2004 sem þáverandi umdæmisstjóri Kiwanis, Sigurgeir Aðalgeirsson félagi í Skjálfanda gerði Hjálmaverkefnið að landsverkefni.

Hann kom á samningi við Eimskip um að vera styrktar aðili verkefnisins og er fyrirtækið það enn 20 árum síðar. 

Á þessum 20 árum sem Hjálmaverkefnið hefur verið samstarfsverkefni Kiwanis og Eimskip þá hafa verið afhentir um 100 þúsund hjálmar til 7 ára barna á öllu landinu. 

Verkefni þetta hefur vakið heimsathygli innan Kiwanis hreyfingarinnar og undrast félagar okkar út í hinum stóra Kiwanis heimi að við hér á litla Íslandi hefðum náð samningum við einn styrktaraðila um þetta merkilega verkefni. 

Það var sannkölluð vorblíða í gær þegar afhendingin fór fram við Kiwanishúsið,  Bjsv. Garðar mætti með sín tæki og þá kom tónlistar hópur úr Tónasmiðjunni sem spiluðu og sungu nokkur lög.

Að venju mætti lögreglan á svæðið og leiðbeindi börnunum um meðferð og notagildi hjálmana, skoðuðu svo hjól barnanna og límdu á þau skoðunatmiða.

Að lokum var boðið upp á grillaðar pylsur og tilheyrandi.

Ljósmynd Hafþór-640.is

Björn Viðar afhendir hér ungum manni hjálm að gjöf.

Ljósmynd Hafþór-640.is

Að sjálfsögðu var stillt upp til hópmyndatöku.



  • Herna

640.is | Ábyrgðarmaður Hafþór Hreiðarsson | vefstjori@640.is | Sími: 895-6744