Jakob Sævar sigraði Janúarmót GoðansÍþróttir - - Lestrar 206
Jakob Sævar Sigurðsson vann sigur á Janúarmóti Goðans sem lauk í dag á Húsavík.
Jakob Sævar fékk 4 vinninga af 5 mögulegum og hafði naumlega betur á oddastigum en Smári Sigurðsson sem einnig fékk 4 vinninga.
Þetta var þriðji titillinn sem Jakob vinnur á tæpu ári. Hann varð skákmeistari Goðans í febrúar og hraðskákmeistari Goðans í desember.
Nýliðinn Adrian Benedicto varð í 3. sæti með 3,5 vinninga eftir feikilega góða frammistöðu á mótinu. Roman Juhas og Hilmar Freyr Birgisson voru einnig að tefla á sínu fyrsta kappskákmóti og geta verið sáttir með árangurinn.
Lokastaðan.
Rk. | SNo | Name | FED | Rtg | Pts. | TB1 | TB2 | TB3 | |
1 | 2 | Sigurdsson Jakob Saevar | ISL | 1796 | 4,0 | 0,5 | 3 | 13,5 | |
2 | 1 | Sigurdsson Smari | ISL | 1827 | 4,0 | 0,5 | 3 | 11,0 | |
3 | 8 | Villanueva Adrian Benedicto | ISL | 0 | 3,5 | 0,0 | 3 | 10,5 | |
4 | 3 | Adalsteinsson Hermann | ISL | 1564 | 2,5 | 0,0 | 2 | 15,0 | |
5 | 7 | Juhas Roman | ISL | 0 | 2,0 | 0,0 | 2 | 13,0 | |
6 | 4 | Akason Aevar | ISL | 1460 | 1,5 | 1,0 | 1 | 12,0 | |
7 | 6 | Birgisson Hilmar Freyr | ISL | 0 | 1,5 | 0,0 | 1 | 12,5 | |
8 | 5 | Asmundsson Sigurbjorn | ISL | 1337 | 1,0 | 0,0 | 1 | 12,5 |
Janúarmótið var síðast haldið sem sérstakt mót árið 2017. Þá vann Sigurður Daníelsson. Janúarmótið var haldið sem lítið innanfélagsmót í stað Framsýnarmóts/BRIM sem margbúið er að fresta.
Tímamörkin í mótinu voru 60 mín + 30sek/leik sem gerði það kleift að halda mótið á tveim dögum. Þrjár umferðir voru tefldar fyrri daginn og tvær seinni daginn. (godinn.is)