17. mar
Íslandsbanki styður við VölsungsÍþróttir - - Lestrar 424
Íslandsbanki og Völsungur hafa gert samstarfssamning fyrir árið 2017 sem felur í sér fjárhagslegan stuðning bankans við allar deildir félagsins.
Höskuldur Skúli Hallgrímsson útibússtjóri Íslandsbanka á Húsavík og Guðmundur Friðbjarnarson framkvæmdastjóri Völsungs undirrituðu samninginn í dag.
Íslandsbanki hefur í gegnum tíðina verið einn af stærstu styrktaraðilum Völsungs og er nýjum samningi við bankann fagnað á heimasíðu félagsins.
Höskuldur Skúli Hallgrímsson og Guðmundur Friðbjarnarson við undirritun samningsins.
Ljósmynd Völsungur.