28. jún
Húsavíkurhöfðagöng - Framvinda í viku 25Almennt - - Lestrar 886
Framvindan í gangagreftri í Húsavíkurhöfðagöngum var þannig í síðustu viku að alls voru grafnir 73 metrar.
Lengd ganga er þá orðin 724 metrar sem er um 77 % af heildargraftrarlengd ganga í bergi.
Þetta er mestu afköst í gangagreftrinum til þessa, áður höfðu mest verið grafnir 67 m á einni viku.
Gangagröfturinn hefur gengið afar vel undanfarið og er þetta fimmta vikan í röð þar sem grafið er yfir 60 metra.
Á þessari yfirlitsmynd er sýnt með rauðri línu hve langt göngin eru komin.