16. sep
Huginn hafnar niðurstöðu áfrýjunardómstóls KSÍÍþróttir - - Lestrar 525
Knattspyrnudeild Hugins á Seyðisfirði sendi nú í kvöld frá sér yfirlýsingu vegna úrskurðar Áfrýjunardómstóls KSÍ frá því fyrr í dag.
Eins og kom fram í fréttum í dag var úrskurðað að leikur Hugins og Völsungs frá 17. ágúst skyldi leikinn aftur.
Forráðamenn Hugins skilja ekkert í vinnubrögðum KSÍ í málinu og hafna úrskurðinum eins og segir í frétt á mbl.is í kvöld en þar má lesa yfirlýsinguna í heild sinni.