18. feb
Guðrún Þóra valin til úrtaksæfinga með U16Íþróttir - - Lestrar 214
Jörundur Áki Sveinsson, lands-liðsþjálfari U16 og U17 kvenna í knattspyrnu hefur valið Völsunginn efnilega Guðrúnu Þóru Geirsdóttur á úrtaksæfingar fyrir U16.
Á síðu Græna hersins er Guðrúnu Þóru óskað góðs gengis á úrtaksæfingunum sem fram fara í Hafnarfirði dagana 26.-28.febrúar nk.
640.is tekur undir það, áfram Völsungur.