10. jún
Glatt á hjalla í útgáfuhófi EgilsAlmennt - - Lestrar 414
Glatt var á hjalla í útgáfuhófi Egils Bjarnasonar blađamanns sem á dögunum sendi frá sér bókina “How Iceland Changed the World: The Big History of a Small Island” hjá hinu kunna alţjóđlega forlagi Penguin Books.
Bókin rekur Íslandssöguna, frá landnámi til vorra daga, međ ögn stórkarlalegu sjónarhorni:
Til ţess ađ gera sögu okkar litla lands ađgengilegri fyrir útlendinga leggur frásögnin áherslu á ţekkta atburđi í mannkynssögunn ţar sem Ísland hefur átt hlut ađ máli.
Bandaríska blađiđ The New York Times hefur kallađ verkiđ “skemmtilega sérstakt” og gagnrýndi The Wall Street Journal tekur í sama streng.
Lífiđ á Húsavík er ađ vonum fyrirferđamikill ţáttur í frásögn Egils, sem kom upphaflega norđur til ađ vinna fyrir Norđursiglingu og kynntist ţar unnustu sinni Sigrúnu Björgu Ađalgeirsdóttur. Ţau keyptu nýveriđ Ketilsbraut 20 af séra Sighvati Karlssyni og Auđi Björk Ásmundsdóttur og fór útgáfuhófiđ fram í bakgarđinum.
Egill áritar hér bók fyrir Röđul Rey og hjá stendur Sigrún Björg međ Val son ţeirra.
Tónlistarmennirnir Arnţór Ţórsteinsson og Jónas Ţór Viđarsson héldu uppi gleđinni.
Međ ţví ađ smella á myndirnar er hćgt ađ fletta ţeim og skođa í hćrri upplausn.