Fatasala Húsavíkurdeildar Rauða krossins

Um árabil hefur Húsavíkurdeild Rauða krossins staðið fyrir fatasöfnun á Húsavík og nærsveitum.

Fatasala Húsavíkurdeildar Rauða krossins
Aðsent efni - - Lestrar 723

Um árabil hefur Húsavíkurdeild Rauða krossins staðið fyrir fatasöfnun á Húsavík og nærsveitum. 

Starfsmenn Húsasmiðjunnar á Húsavík taka á móti fatnaði og Flytjandi kemur honum til Reykjavíkur til flokkunar og sölu í búðum Rauða krossins á höfuðborgasvæðinu og  út um land. Hluti fatnaðarins fer líka til bágstaddra víða um heim.

Þriðjudaginn 22. janúar hefst fatasala Húsavíkurdeildar Rauða krossins. Fatnaður sem þar verður til sölu kemur að mestu leyti frá fataflokkun Rauða krossins í Reykjavík.

Húsvíkingar og aðrir Þingeyingar er hvattir til að koma fötum og skóm  sem ekki nýtast í gáminn í Húsasmiðjunni. Eins er hægt að koma með föt, skó og textíl af öllu tagi í Setrið í Snælandi við Árgötu 12 virka daga frá kl. 13 – 16. Það sem berst í Setrið verður selt í búð Rauða krossins á Húsavík en annað flutt suður.  Öll  flokkun verður í Setrinu.

Fatasala Rauða krossins er í sama húsnæði  og Kynlegir kvistir reka sölu á notuðum hlutum í N1 húsinu við Héðinsbraut 2.Sjálboðaliðar Rauða krossins og Setursins annast  vinnu við fatasöluna. Ágóðinn fer til Húsavíkurdeildar Rauða krossins sem ráðstafar honum til líknarmála í héraði.

Verið velkomin í fatasölu Rauða krossins og verslun Kynlegra kvista og gerið góð kaup um leið og stutt er við góð málefni. Fyrst um sinn verða ekki notuð greiðslukort.

Opið frá kl. 16 – 18 á þriðjudögum og fimmtudögum.

Þakkir:  Setrið, Húsasmiðjan,Flytjandi, N1.

Halldór Valdimarsson formaður Húsavíkurdeildar Rauða krossins.

 


  • Herna

640.is | Ábyrgðarmaður Hafþór Hreiðarsson | vefstjori@640.is | Sími: 895-6744