18. okt
Ţrír nýir leikmenn til liđs viđ Völsung í Mizunodeild kvennaÍţróttir - - Lestrar 732
Um helgina hefst keppni í úrvalsdeild kvenna í blaki og fara Völsungsstúlkur suđur yfir heiđar ţar sem ţćr mćta liđi Aftureldingar í Mosfellsbć í tvígang.
Fyrri leikurinn er á laugardag kl. 13:00 og sá síđari á sunnudag kl. 13:00
Í tilkynningu segir ađ liđ Völsungs sé mikiđ breytt frá fyrra ári, eldri reynsluboltar eru smá saman ađ tínast úr lestinni og 12 manna leikmannahópur meistaraflokks er ađ mestu skipađur bráđefnilegum ungum stelpum úr 2 og 3 flokki ásamt nokkrum erlendum leikmönnum .
Rut Gomes frá Guatemala og Ashley Boursiqout frá Bandaríkjunum gerđu samning viđ Blakdeildina um ađ ćfa og leika međ liđinu fram ađ áramótum ásamt ţví ađ koma ađ ţjálfun yngri blakara. Ţćr eru báđar mjög sterkar og öflugar blakkonur og munu styrkja Völsungssliđiđ mikiđ og eru ađ gera góđa hluti međ krakkana enda miklar fyrirmyndir á velli og hressar vel.
Einnig gekk til liđs viđ blakliđiđ hin Pólska Alexandra Drozolek sem starfar hjá PCC á Bakka. Hún mćtti á ćfingu og var umsvifalaust tekin um borđ enda hörkublakari međ óvenjulegan slagkraft sem mun vonandi skila sér í hörkuskellum í leikjunum framundan. Ţjálfari liđsins er sem fyrr Sladjana Simjanic.
Stefnan er sett á ađ halda áfram uppbyggingu á blakliđi sem geti keppt um titla á nćstu árum. Upp eru ađ koma stórefnilegar stelpur úr yngri flokka starfinu sem munu smám saman taka viđ keflinu og bera uppi liđ framtíđarinnar. Nćstu 2-3 árin er samt alveg ljóst ađ utanađkomandi liđsstyrkur er nauđsynlegur fyrir Völsungssliđiđ svo hćgt sé ađ halda uppi samkeppnishćfu liđi međal ţeirra bestu.
Samhentur hópur áhugafólks ber upp starfiđ á bak viđ tjöldin og treystum viđ á ađ Húsvíkingar og Ţingeyingar styđji vel viđ liđiđ í vetur og mćti í höllina á heimaleiki.
Blakdeild Völsungs heldur úti facebook síđu ţar sem helstu fréttir koma fram ásamt upplýsingum um beinar útsendingar frá útileikjum. Áfram Völsungur !!
Ashley Boursiquot og Rut Gomez.
Alexandra Drozolek.