Atvinnu- og nýsköpunarhelgi á AkureyriAðsent efni - - Lestrar 483
Helgina 24. – 26. febrúar næstkomandi verður haldin Atvinnu- og nýsköpunarhelgi á Akureyri. Að helginni standa Innovit, Landsbankinn og Tækifæri fjárfestingarsjóður í samstarfi við Akureyrarbæ. Eins styðja fjölmörg fyrirtæki af svæðinu rausnarlega við viðburðinn. Meginmarkmið helgarinnar er að efla frumkvöðlastarf og þróun nýrra hugmynda ásamt því að ýta undir atvinnusköpun á hverju svæði fyrir sig.
Atvinnu- og nýsköpunarhelgin er opin fyrir alla, fyrir þá sem eru með viðskiptahugmynd og þá sem hafa áhuga á að leggja sitt að mörkum við að fullmóta viðskiptahugmynd annarra. Þátttakendur njóta leiðsagnar og ráðlegginga frá sérfróðum aðilum og fá tækifæri til að hlusta á reynda fyrirlesara miðla þekkingu sinni varðandi framgöngu hugmynda og stofnun fyrirtækja. Verðlaun og viðurkenningar verða veittar fyrir bestu hugmyndirnar í nokkrum flokkum, alls nema heildarverðlaun helgarinnar 1.500.000 króna. Í framhaldi geta þátttakendur haldið áfram að þróa sínar viðskiptahugmyndir og fengið til þess ráðgjöf með það að markmiði að sem flestar viðskiptahugmyndir verði að veruleika.
Þetta er í annað sinn sem að Atvinnu- og nýsköpunarhelgi er haldin á Akureyri. Í apríl árið 2011 mættu yfir 70 manns og voru kynntar 27 viðskiptahugmyndir. Sigurvegari helgarinnar var viðskiptahugmyndin, Arctic Ocean World, uppbygging á einstökum sjávardýragarði á Akureyri.
Enginn kostnaður fylgir þátttöku en skráning fer fram á www.anh.is. Þar er einnig hægt að nálgast dagskrá og nánari upplýsingar um Atvinnu- og nýsköpunarhelgina. (Fréttatilkynning)