23. des
Arney valin í U17- landslið stúlkna í blakiÍþróttir - - Lestrar 557
Arney Kjartansdóttir er ein þeirra tólf leikmanna sem þjálfararnir Daniele Capriotti og Erla Bjarný Jónsdóttir hafa valið til að keppa fyrir hönd Íslands í C-riðli undankeppni EM fyrir U17 stelpur.
Liðið heldur til Tékklands 4. janúar og spilar þrjá leiki dagana 5. - 7. janúar.
Mótherjarnir eru lið heimamanna, Spánn og Slóvenía.
640.is óskar Arney til hamingju með árangurinn.