Arna Védís og Heiđar Hrafn Íţróttafólk Völsungs 2019Íţróttir - - Lestrar 478
Arna Védís Bjarnadóttir og Heiđar Hrafn Halldórsson voru kjörin íţróttakona og íţróttamađur Völsungs fyrir áriđ 2019.
Kjöriđ var kunngjört á samkomu sem Völsungur hélt í salnum í Miđhvammi í dag.
Ţađ voru Arnţór Hermannsson og Arnar Vilberg Ingólfssonar fulltrúar Íslandsbanka á Húsavík sem afhentu Íţróttafólki ársins verđlaunin.
Í umsögn segir ađ Arna Védís hafi ţrátt fyrir ungan aldur veriđ burđarás í meistaraflokksliđi Völsungs í blaki undanfarin ár.
Hún lék stórt hlutverk í liđi Völsungs tímabiliđ 2018-2019 ţegar liđiđ náđi ţeim frábćra árangri ađ spila í undanúrslitum bćđi í Bikarkeppni og Úrvalsdeild Blaksambands Íslands sem er jafnframt besti árangur Völsungs í liđsíţrótt á Íslandsmóti á ţessari öld.
Arna Védís var valin í landsliđ Íslands í blaki haustiđ 2018 og lék ţá sinn fyrsta Landsleik fyrir Íslands hönd á Ítalíu. Arna hefur einnig leikiđ fyrir U19 ára landsliđ Íslands.
Voriđ 2019 var Arna aftur valin til ćfinga med A landsliđinu og er nú milli jóla og nýárs í ćfingabúđum í Reykjavík ţar sem lokahópur verdur valinn fyrir verkefni liđsins strax eftir áramót.
Ţá er Arna Védís burđarás og leiđtogi í uppbyggingu međ ţeim ungu stelpum sem meistarflokkur er byggđur á á ţessu keppnistímabili.
Heiđar Hrafn Halldórsson langhlaupari, sem tilnefndur var af Almennings-íţróttadeild Völsungs, átti sitt langbesta á ár í sportinu til ţessa.
Í umsögn segir: "Ćfingar og ţátttaka í öllum vegalengdum í götuhlaupum og góđar bćtingar í ţeim öllum, mest í 10 km hlaupi (38:45). Ungi smalinn af Tjörnesinu hljóp mun meira af fjallahlaupum en áđur og gekk eđlilega mjög vel.
Var t.a.m. í topphópnum í Snćfellsjökulshlaupinu. Besta frammistađan í fjallhlaupunum var í Sjö Tindahlaupinu. Ađ taka ţátt í ţví hlaupi og ljúka, ţykir hin mesta ţrekraun. Ţar náđi Heiđar 2. sćti á tímanum 4 klst. 21 mín.. Hlaupiđ er 38,2 km. og heildarhćkkun 1.822 metrar".
Yfirlit yfir helsta árangur ársins:
Botnsvatnshlaup Landsbankans: 33:11 – 1. sćti
Hraunhlaupiđ Mývatnssveit: 42:31 – 1. sćti
Sjö Tindahlaupiđ (38 km, 1822 m hćkkun): 4:21:51 - 2. sćti
Hausthlaup UFA 10 km: 38:45 – 2. sćti
Akureyrarhlaupiđ 5 km: 18:45 – 3. sćti
Á topplista hlaup.is yfir bestu tíma karla í bćđi maraţoni og hálfmaraţoni 2019.
Ţriggja landa Maraţon 42,2 km: 03:18
Íţróttafólk Völsungs fyrir áriđ 2019, Arna Védís Bjarnadóttir og Heiđar Hrafn Halldórsson.
Međ ţví ađ smella á myndirnar er hćgt ađ fletta ţeim og skođa í hćrri upplausn.