14. sep
Blak - Arna Védís valin í æfingahóp unglingalandsliðaÍþróttir - - Lestrar 520
Arna Védís Bjarnadóttir leikmaður Völsungs hefur verið valin í æfingahóp landsliða U17 - U19 ára stúlkna í blaki.
Landsliðsþjálfarateymi kvennalandsliða í forsvari Daniele Capriotti hefur valið 42 stúlkur í úrtakshópa fyrir unglingalandsliðin sem fara í NEVZA mótin í haust.
Þjálfarateymið samanstendur af 5 þjálfurum sem skipta með sér ferðunum í mótin en U17 liðið fer til IKAST í Danmörku 15.-20. október og U19 liðið til Kettering á Englandi 26.-30. október.