30. jún
Anna María heldur áfram að gera það gott í bogfimiÍþróttir - - Lestrar 159
Eins og kom fram á 640.is fyrir skömmu hefur Anna María Alfreðsdóttir vakið athygli undanfarin ár fyrir góðan árangur í bogfimi.
Um síðustu helgi tók Anna María, sem keppir fyrir ÍF Akur, þátt í Íslandsmóti Ungmenna utanhúss sem haldið var á Víðistaðatúni í Hafnarfirði af Bogfimisambandi Íslands.
Þar vann hún gullverðlaun í trissuboga kvenna og þar með Íslandsmeistaratitil en lesa má nánar um mótið og árangur Önnu Maríu hér.