16 herbergja hótel opnar á Húsavíkurhöfða í vor

Gistiheimili Húsavíkur vinnur nú að uppbyggingu 16 herbergja hótels fremst á Húsavíkurhöfða, þar sem áður var rækjuvinnsla Fiskiðjusamlags Húsavíkur.

16 herbergja hótel opnar á Húsavíkurhöfða í vor
Aðsent efni - - Lestrar 1056

Gistiheimili Húsavíkur vinnur nú að uppbyggingu 16 herbergja hótels fremst á Húsavíkurhöfða, þar sem áður var rækjuvinnsla Fiskiðjusamlags Húsavíkur. Fyrri áfanga af tveim verður lokið í vor og verður Hótel Húsavíkurhöfði opnað 25. maí 2012.

Í fréttatilkynningu segir að frá hinu nýja hóteli sé gott útsýni yfir höfnina, flóann og bæinn. Herbergin sem opna í vor eru á jarðhæð og verða mjög rúmgóð. Í síðari áfanga verða innréttuð herbergi í risi hússins.

Húsið sem var reist af Fiskiðjusamlagi Húsavíkur árið 1950 hefur hýst ýmiskonar atvinnustarfsemi. Fyrst var þar saltfiskvinnsla, síðar rækjuvinnsla og loks trésmiðja. Nú mun húsið enn á ný fyllast af lífi og hýsa ferðamenn sem koma til að skoða okkar fallega bæ.

Nánari upplýsingar um Hótel Húsavíkurhöfða má finna hér: http://is.husavikhotels.com/hotel-husavikurhofdi/


  • Herna

640.is | Ábyrgðarmaður Hafþór Hreiðarsson | vefstjori@640.is | Sími: 895-6744