Gamla myndin að þessu sinni er sú elsta sem birts hefur í þessum dálki. Tekin í júlí 1939 út í Flatey á Skjálfanda. Hún sýnir knattspyrnulið eyjaskeggja ásamt þjálfara þess, Þráni Kristjánssyni. Vefstjóri ber kennsl á Jón Hermannsson og Gunnar Guðmundsson á myndinni og ljóshæðri maðurinn í aftari röðinni er Þráinn Kristjánsson.

Knattspyrnulið Flateyinga árið 1939.
Gamla myndin sem nú birtist er tekin undir lok síldaráranna af Hreiðari Olgeirssyni. Eitthvað hefur verið rólegt á Dagfaranum og þeir Eiríkur heitinn Halldórsson og Hermann Ragnarsson slappa af með pípurnar sínar.

Eiríkur Halldórsson og Hermann Ragnarsson.
Fyrsta gamla myndin á þessu ári er ekki svo mjög gömul eða frá árinu 2001. Hún sýnir Ólympíufarann okkar, Stefán Jón Sigurgeirsson með bikar í hönd sem hann vann í firmakeppni.

Stefán Jón Sigurgeirsson 2001.
Gamla myndin að þessu sinni er af Sigurði Jónssyni kenndum við Stapa hér í bæ. Hreiðar Olgeirsson tók myndina einhvern tímann í kringum 1980. Sigurður var sjómaður og útgerðarmaður og á myndinni er hann að vinna við grásleppunetin. Fyrr á árinu birtist skemmtileg mynd af Sigga í Stapa á Skipamyndasíðunni

Sigurður Jónsson (f.1923-d.1996).
Hér kemur ein gömul mynd til og sýnir hún knattspyrnulið Völsungs sem sigraði 2. deildina 1986 og fór upp í efstu deild í fyrsta og eina skiptið í sögu félagsins. Hingað til.

Völsungur 1986.
Þessi gamla mynd sýnir Aðalstein Júlíusson ungan að árum á skaki vestur í Látraröst. Þarna var hann 19 ára og í mokfiskirí segir hann. Báturinn er Máni BA 211 og ef þú vilt sjá hann skaltu ýta hér

Aðalsteinn Júlíusson. (Addi lögga)
Hér kemur gömul mynd úr safni Höskuldar Sigurgeirssonar og sýnir Aðalstein Guðmundsson ( f. 05.09.1929-d. 30.03.1975 )bifreiðarstjóra við bifreiðastöð sína. Sá litli í rauðu skónum gæti verið Arnar Laufdal sonur hans. Hver hinn maðurinn er kann síðuritari ekki að nefna.

Þessi gamla mynd er tekin á hafnarvigtinni gömlu og ljósmyndarinn vigtarstjórinn sjálfur. Eysteinn Gunnarsson (f. 15.10.1921 d. 30.04.1995). Þarna eru þeir Ívar Júlíusson og Viðar Þórðarson (f. 20.07.1932 d. 12.05. 2008) á vigtinni , sennilega að bíða eftir eftir að bátar komi að landi.

Ívar Júlíusson og Viðar Þórðarson.
Hér koma tvær myndir úr safni Höskuldar Sigurgeirssonar og sýna þær að það snjóaði í gamla daga rétt eins og þessa dagana. Efri myndin er tekin við Naustagil og sýnir olíubíla olídeildarinnar en sú neðri er tekin niðri á hafnarstétt.

Olíubílar við Naustagil.

Héðinn Maríusson (f. 18. desember 1899- d. 22. mars 1989) við bát í fannfergi.
Hér kemur mynd af Vigfúsi Hjálmarssyni (f. 12. apríl 1908-d. 15. ágúst 1982) slökkviliðsstjóra húsvíkinga en hana tók Höskuldur Sigurgeirsson. Vigfús er í fullum skrúða en ekki fylgdi myndsendingunni af hvaða tilefni hún var tekin. Fleiri myndir frá Höskuldi bíða birtingar og sumar hverjar birtast á Skipamyndavefnum

Vigfús Hjálmarsson.
Hér birtist mynd sem Silli tók af séra Friðrik með fermingarbörnum sem fermdust frá Húsavíkurkirkju þann 20. maí 1945. Sigrún Kjartansdóttir sendi þessa mynd inn.

Drengirnir eru:
Jóel, Ásgeir, Bjössi Sör, Skúli, Hreinn, Bjössi Togga, Kári, Jónas, Gísli,
Bjössi Kidda, Beisi og Steini.
Stúlkurnar
eru: Hanna, Sigrún, Togga, Hjördís, Stína, Brynhildur, Stubba(Guðrún), Tóta,
Ásta, Selma og Hrefna.
Þá er fyrsta gamla mynd ársins komin inn og þó fyrr hefði verið. Hana tók Bjarki Arnbjörnsson sem þá var skipverji á Sigþór þH 100. Á myndinni bregður Busi á leik með þorsk einn og ef vel er að gáð er hann óvenju vel tenntur.

Busi (Hafþór Harðarson) bregður á leik.
Loksins kemur gömul mynd og nú er hún frá flugeldasölu Kiwanismanna árið 2002. Á myndinni eru félagarnir Þórður heitinn Ásgeirsson og Brynjar Þór Halldórsson sem seldu húsvíkingum og nærsveitarmönnum flugelda í árarðir. Og Binni er enn að.

Þórður Ásgeirsson og Brynjar Þór Halldórsson.
Gamla myndin að þessu sinni er ekki svo ýkja gömul, tekin aldamótaárið í skúrnum hjá Óla heitnum á Borgarhóli. Þarna var hann að skera út súlu eina sem fór sennilega niður á Gamla Bauk.

Ólafur Guðmundsson á Borgarhóli.
Aðalbjörg Katrín Arnórsdóttir, eða bara Lilla Arnórs, sendi 640.is gömlu myndina að þessu sinni. Hún var tekin við Mjólkurstöðina á Öskudaginn einhvern tímann upp úr 1980. Mikki auðþekkjanlegur á myndinni en aðrir eru frá vinstri, Guðrún Árnadóttir (Dúna), Sólveig Halla Hallgrímsdóttir, Sigurlaug Sævarsdóttir (Didda), Ester Halldórsdóttir, Kristjana Kristjánsdóttir, Mikael Þórðarson, og Sjöfn Þórgrímsdóttir. Þá vantar nöfn á tvo sem eru á myndinni og Lilla spyr hvort sá sem stendur fyrir framan Kristjönu geti verið Reynir Björnsson og sú sem krýpur sé Helga Dóra Helgadóttir. En hún er ekki viss.

Gamla myndin kemur nú frá Jósef Matthíasyni en hann tók hana í nóvember 1982 þegar mjög kröpp og djúp lægð gekk yfir landið og olli miklu hvassviðri um allt land. Milljónatjón varð þá í höfnum á norðurlandi en hásjávað var og gekk sjór víða á land. Fleiri myndir er hægt að skoða á www.123.is/skipamyndir í albúmi sem nefnist Húsavíkurhöfn í nóvember 1982.

Húsavíkurhöfn í nóvember 1982. Ljósm. Jósef Matthíasson.
Gamla myndin að þessu sinni er ekki nema sex ára. Hún er frá undirritun samnings á milli Búbótar ehf. og Íslenskra fjallagrasa ehf. um samstarf við framleiðslu á hálsmixtúru úr íslenskum fjallagrösum. Samningin undirrituðu Jakob S. Bjarnason fh. Búbótar og Guðmundur Jónsson fh. Íslenskra fjallagrasa ehf. að viðstaddri Valgerði Sverrisdóttur sem þá var iðnaðar- og viðskiptaráðherra.

Hér kemur önnur öskudagsmynd frá Hafliða Þórssyni og þá sennilega tekin í sama skipti og myndin hér að neðan. Á þessari mynd má sjá Bjarna Hafþór Helgason neðst í vinstra horninu og gott ef ekki glittir í Helga bróðir hans fyrir aftan hann.

Gamla myndin að þessu sinni kemur frá Hafliða Þórssyni og er tekin á Öskudaginn 1962 eða 1963. Á myndinni eru fv. Sigurður Þórsson, Kári Arnór, A.L hver er það ?, Helgi Pálmason og Sigmundur Þorgrímsson.

Siggi, Kári, ?, Helgi og Simmi.
Gamla myndin að þessu sinni er af Þórarni Vigfússyni eða Tóta eins og flestir þekktu hann. Þarna er sá gamli að skera hákarl á bryggjunni einhvern tímann upp úr 1990, sennilega 1993.

Þórarinn Vigfússon.
Aftur kemur mynd sem Hreiðar Olgeirsson tók þegar Kolbeinsey ÞH 10 kom ný til Húsavíkur. Á hennir er Ólafur Aðalsteinsson sem þá var hafnarvörður.

Ólafur Aðalsteinsson.
Gamla myndin að þessu sinni kemur úr safni Hreiðars Olgeirssonar og var tekin 10. maí 1981 þegar Kolbeinsey ÞH 10 kom til heimahafnar í fyrsta skipti. Á myndinni eru Benjamín Antonsson skipstjóri á Kolbeinsey og frú ásamt Helga Kristjánssyni.

Gamla myndin nú er tekin af Hreiðari Olgeirssyni árið 1979. Hún sýnir þá Björn Viðar og Má Höskuldsson skipverja á Kristbjörgu II við stóreflis hákarl sem þeir hafa fengið í netin.

Gamla myndin að þessu sinni er tekin í Skálabrekkunni af Sólveigu Sigurðardóttur, sennilega sumarið 1970. Á myndinni eru fv. Guðrún Ásta Sigurðardóttir í Hlíð (Didda) Sigurhanna Sigfúsdóttir, Ragnar Ragnarsson, Kristján B. Olgeirsson og Árni Kjartansson. Heiðar Geir Olgeirsson er svo þessi litli fyrir framan þau.

Didda í Hlíð, Hanna Siffa, Raggi, Beggi í Skálabrekku, Árni á Þórðarstöðum og Heiddi í Skálabrekku.
Gamla myndin að þessu sinni er ekki svo ýkja gömul, tekin árið 2000 af krökkum sem héldu Tombólu til styrktar góðu málefni. Minnir að það hafi verið Rauði Krossinn sem naut þess í þetta skipti.

Fremri röð fv. Börkur Guðmundsson, Selmdís Þráinsdóttir og Kristinn Lúðvíksson.
Aftari röð fv. Íris Grímsdóttir, Huld Grímsdóttir og Íris Sveinbjörnsdóttir (held ég)

Þessa mynd fékk ég senda frá Akureyri og sýnir hún þá bræður Ragnar og Jón Hermannssyni um borð Bjarma ÞH sem þeir áttu og gerðu út. fyrst frá Flatey og síðar Húsavík.

Gamla myndin að þessu sinni er tekin á sjómannadaginn 1967 af Hreiðari Olgeirssyni. Sýnir hún áhafnarmeðlimi á Fanney ÞH 130 sem unnið höfðu til verðlauna í einhverri keppnisgreininni. Þetta eru fv. Jóhann Gunnarsson, Sigtryggur Kristjánsson, Brynjar Þ. Halldórsson, Óli Austfjörð og Ívar Júlíusson.

Gömlu myndina að þessu sinni fékk ég senda frá Bóba yngri en hún er tekin um borð í Sigurði RE 4 þegar skipið stundaði veiðar á fjarlægum slóðum. Á henni eru Höskuldur Jónsson, Ói jafnan kallaður, með pípuna og Guðmundur Jónasson, Gummi Donda, ásamt þriðja manni við vinnu sína. Sigurður RE var við veiðar bæði við Nýfundnaland og Márítaníu á sínum tíma, 1975-1979eða þar um bil.

Gamla myndin að þessu sinni er ekki nema sjö ára gömul en gömul samt. Hér eru útskriftarhópur frá FSH 2001 ásamt Guðmundi Birki Þorkelssyni skólameistara.

Úlla hans Kalla Geirs sendi mér þessa mynd sem hún tók í Kúttersíld í gamla daga. Á henni eru Birna Bessadóttir, Sigríður Gunnlaugsdóttir, svo kemur Dúa kona Kidda Sæþórs að sögn Úllu og Ingunn Vigdís Sigmarsdóttir er á endanum.

Gamla myndi að þessu sinni sýnir starfsmenn Alla Geira í bókaflutningum. Þarna er verið að taka bókasafn Sr. Björns H. Jónssonar út úr húsinu að Laugarbrekku 22 til flutnings suður á bóginn. Á myndinni má þekkja Kjartan Bjarnason, Þorgrím Jónsson og spurning hvort þetta sé Baldur sem er að plasta. Upp á svölum eru m.a. Ástþór Stefánsson, Geir Ívarsson og Garðar Jónasson. Svo má fastlega gera ráð fyrir að Baddi, Baldvin Baldursson, sé á lyftaranum.

Enn og aftur er gamla myndin úr myndasafni Hreiðars Olgeirssonar. Hún sýnir áhafnarmeðlimi á síldarskipinu Dagfara ÞH 70 sem skroppið höfðu í land á Jan Mayen enda síldarleysið í hámarki. Þeir voru allir búsettir á Húsavík þá nema Björn Jónsson frá Akureyri sem er lengst til hægri. Hinir eru, fv. Hermann Ragnarsson, Sigmundur Eiríksson, Hörður Þorfinsson, Gunnlaugur Jónasson og Baldvin Jónsson.


Gamla myndin að þessu sinni er í fleirtölu. Læt tvær inn að þessu sinni en þær tók Hreiðar Olgeirsson í aprílbyrjun 1968. Þá var Skjálfandaflói ísilagður og menn urðu varir við höfrungavöðu í vök á ísnum. Talið var að þeir ættu enga möguleika á að bjarga sér og voru því drepnir í vökinni. Af myndunum að dæma er þetta fram úr Haukamýrinni. Mennirnir tveir á neðri myndinni eru Kiddi Lúlla og Helgi Héðins.

Þessi mynd hér að ofan kemur úr fjölskyldualbúminu hjá Höllu og Hreidda. Hún er tekin á Öskudaginn fyrir margt löngu, á að giska 1971-3. Hún er tekin við blokkina að Garðarsbraut 73-75 og þarna er verið að leggja í'ann í bæinn. Á myndinni eru nokkur af börnum frumbyggja í blokkinni, Fv. Hallgrímur og Ragnheiður Hreiðarsbörn, Þorgrímur Friðrik Jónsson sem reyndar bjó í næsta nágrenni við blokkina, Hafþór Hreiðarsson, Birkir Elmarsson og Kristján Hjálmarsson.

Árið er 1995, einhverskonar fjallahjólakeppni er haldin á Húsavík. Þar mæta til keppni hreystimenni og hjóla sem óðir væru um allan bæ og sjálfsagt eitthvað lengra. Svavar Cesar var einn þeirra sem tók þátt og þó hann stundaði nú ekki aðra líkamsrækt en vinnuna sína, sem var þá eins og í dag vöruflutningar, þá komst kallinn í mark.

Gamla myndin að þessu sinni er tekin 17. júní 1965 eða 6 af Hreiðari Olgeirssyni. Húsvískir hestamenn í hestamannafélaginu Grana ríða hér hópreið norður Garðarsbraut. Þarna má m.a. sjá Vegamót og Hrunabúð og númerið á appelsínugula fólksbílnum er Þ 676.

Gamla myndin er einn liður sem verður á 640.is og á fyrstu myndinni sem var tekin einhvern tímann upp úr 1990 er rithöfundurinn Thor Vilhjálmssona að lesa vikublaðið Pressuna. Hann situr í sól og blíðu fyrir utan Bókaverslun Þórarins Stefánssonar niðursokkinn í lesturinn og hefur engan grun um að verið sé að mynda hann. Eins og sjá má í glugganum í bókabúðinni var þennan dag 15 % afsláttur af öllum reiðhjólum sem verslunin var með á boðstólunum. Kodakfilman var í fullum swing og Stjórnin hefur verið nýlega búin að gefa út hljómplötuna, já segi og skrifa hljómplötuna því þetta er vínill, Tvö líf. Vilhjálmur Vilhjálmsson hefur verið kominn út á CD á þessum tíma eins og sést lengst til hægri. Thor er af þingeyskum ættum og á því vel heima hér á 640.is enda kemur Húsavík fyrir í einni af bókum hans.











