Rimma klerksins við Einar S
Almennt - þriðjudagur 09.mars 2010 - Hafþór Hreiðarsson - Athugasemdir (0)

Sighvatur og Einar við taflborðið. Ljósm. HA
Eins og sagði á 640.is í gær var Sr. Sighvatur í skákliði Goðans sem keppti á Íslandsmóti skáfélaga um síðustu helgi. Síðasta skák klerksins á mótinu verður lengi í minnum höfð, amk. á meðal Goðamanna, en þá sigraði hann Einar S. Einarsson fyrrv. formann skáksambands Íslands í rimmu sem tók 108 leiki.

Sighvatur hefur nú skrifað lýsingu á skákrimmunni við Einar sem birtist hún á heimasíðu Goðans og lesa má hér











