Starfsemi meðferðarheimilisins að Árbót verður hætt í sumar

Fram kom í svæðisfréttum RÚV í dag að meðferðarheimilinu að Árbót í Aðaldal verður lokað í sumar. Forstöðumaður Barnaverndarstofu segir spurn eftir vistun þar hafa minnkað og ef til vill megi kenna um kynferðisbrotamáli því sem þar kom upp fyrir tveimur árum. Það hafi þó ekki verið kannað en mikil eftirsjá sé í starfseminni að Árbót.
Mikið hefur dregið úr spurn eftir þjónustu
Árbótar undanfarna mánuði og sama þróun á sér stað á mörgum sambærilegum heimilum að sögn Braga
Guðbrandssonar, forstöðumanns Barnaverndarstofu. Hann segir að önnur og fjölbreyttari meðferðarúrræði séu nú í boði
í meira mæli en áður, auk þess sem krafan um menntað fagfólk hafi aukist. Ekki hafi tekist að fá nægt fagfólk til starfa í
Árbót.
Eins og kunnugt er, féll á dögunum dómur í kynferðisbrotamáli sem upp kom í Árbót fyrir tveimur árum. Bragi segist ekki
geta útilokað að umræðan í kjölfarið hafi haft áhrif á minnkandi spurn eftir þjónustunni í Árbót.
Það hafi hinsvegar ekki verið kannað sérstaklega. Bragi segir eftirsjá í starfseminni í Árbót, en mjög gott samstarf hafi
verið við hjónin sem rekið hafa heimilið um árabil. Þar hafi verið rekið metnaðarfullt starf og eftir dvöl í Árbót hafi
fjöldi ungs fólks komist út í lífið á nýjan leik.











