Salka

Frttir

Starfsemi meferarheimilisins a rbt verur htt sumar

Meferarheimili a rbt  Aaldal.
Meferarheimili a rbt Aaldal.

Fram kom í svæðisfréttum RÚV í dag að meðferðarheimilinu að Árbót í Aðaldal verður lokað í sumar. Forstöðumaður Barnaverndarstofu segir spurn eftir vistun þar hafa minnkað og ef til vill megi kenna um kynferðisbrotamáli því sem þar kom upp fyrir tveimur árum. Það hafi þó ekki verið kannað en mikil eftirsjá sé í starfseminni að Árbót.

 

Mikið hefur dregið úr spurn eftir þjónustu Árbótar undanfarna mánuði og sama þróun á sér stað á mörgum sambærilegum heimilum að sögn Braga Guðbrandssonar, forstöðumanns Barnaverndarstofu. Hann segir að önnur og fjölbreyttari meðferðarúrræði séu nú í boði í meira mæli en áður, auk þess sem krafan um menntað fagfólk hafi aukist. Ekki hafi tekist að fá nægt fagfólk til starfa í Árbót.

Eins og kunnugt er, féll á dögunum dómur í kynferðisbrotamáli sem upp kom í Árbót fyrir tveimur árum. Bragi segist ekki geta útilokað að umræðan í kjölfarið hafi haft áhrif á minnkandi spurn eftir þjónustunni í Árbót. Það hafi hinsvegar ekki verið kannað sérstaklega. Bragi segir eftirsjá í starfseminni í Árbót, en mjög gott samstarf hafi verið við hjónin sem rekið hafa heimilið um árabil. Þar hafi verið rekið metnaðarfullt starf og eftir dvöl í Árbót hafi fjöldi ungs fólks komist út í lífið á nýjan leik.

 



Bland poka

Til sölu borðstofuborð og sex stólar. Smelltu á myndina hér að neðan til að skoða betur.

 

 

 

Mynd augnabliksins

thorri_gunnarsson_spyrnir_fra.jpg

Knnun

a fara berjam

Dagatal

« September 2010 »
SMÞMFFL
 1234
567891011
12131415161718
19202122232425
2627282930 

nstunni

Engir viburir nstunni

Pstlistar

Teljari

dag: 564
Samtals: 606620

Framsetning efnis

moya - Útgáfa 1.12 2007 - Stefna ehf

Innskrning