Ljósmyndasamkeppni Norðurþings

Fréttir

Galti kominn úr breytingum og byrjaður á grásleppu

Galti ÞH 320 kemur til hafnar í dag.
Galti ÞH 320 kemur til hafnar í dag.

Grásleppusjómenn fóru út með net sín í morgunsárið og voru að koma inn fram eftir degi eftir að hafa lagt þau. Galti ÞH kom inn um miðjan daginn  en báturinn kom til Húsavíkur úr breytingum sem hann var í á Siglufirði  í fyrrinótt.

Breytingarnar á bátnum voru þær að byggt var yfir flotkassann á honum sem lengir dekkið á honum talsvert og gefur mun betra vinnupláss. Þá var skipt um skrúfu á bátnum auk ýmissa lagfæringa.

 

Aðalgeir Bjarnason fyrrum skipstjóri á Björgu Jónsdóttur er útgerðarmaður og skipstjóri á Galta og með honum róa Sigurður bróðir hans og frændi þeirra Olgeir Sigurðsson. Það er því alveg morgunljóst að næg eru réttindin til skipsstjórnar um borð í Galta, Siggi starfar sem skipstjóri á Jónu Eðvalds, sem áður hét Björg Jónsdóttir, og Olli var skipstjóri á Geira Péturs árum áður.

Olli og Alli að græja netin um borð í Galta í gær.

Komnir að bryggju í dag.

 



Bland í poka

Til sölu borðstofuborð og sex stólar. Smelltu á myndina hér að neðan til að skoða betur.

 

 

 

Mynd augnabliksins

stefan_thorsson.jpg

Könnun

Ertu með kartöflugarð

Sjá niðurstöður
Sjá allar kannanir

Dagatal

« September 2010 »
SMÞMFFL
 1234
567891011
12131415161718
19202122232425
2627282930 

Á næstunni

Engir viðburðir á næstunni

Póstlistar

Teljari

Í dag: 275
Samtals: 609805

Framsetning efnis

moya - Útgáfa 1.12 2007 - Stefna ehf

Innskráning