Galti kominn úr breytingum og byrjaður á grásleppu

Grásleppusjómenn fóru út með net sín í morgunsárið og voru að koma inn fram eftir degi eftir að hafa lagt þau. Galti ÞH kom inn um miðjan daginn en báturinn kom til Húsavíkur úr breytingum sem hann var í á Siglufirði í fyrrinótt.
Breytingarnar á bátnum voru þær að byggt var yfir flotkassann á honum sem lengir dekkið á honum talsvert og gefur mun betra vinnupláss. Þá var skipt um skrúfu á bátnum auk ýmissa lagfæringa.
Aðalgeir Bjarnason fyrrum skipstjóri á Björgu Jónsdóttur er útgerðarmaður og skipstjóri á Galta og með honum róa Sigurður bróðir hans og frændi þeirra Olgeir Sigurðsson. Það er því alveg morgunljóst að næg eru réttindin til skipsstjórnar um borð í Galta, Siggi starfar sem skipstjóri á Jónu Eðvalds, sem áður hét Björg Jónsdóttir, og Olli var skipstjóri á Geira Péturs árum áður.

Olli og Alli að græja netin um borð í Galta í gær.

Komnir að bryggju í dag.











